24. ágúst 2010 15:11 |
140 starfsmenn grunnskóla Akureyrarbæjar útskrifast af námskeiði |
Þann 20.ágúst sl. luku starfsmenn grunnskólanna aðrir en kennarar námskeiðinu „Að verða hluti af heild“. Námskeiðið var þróað af SÍMEY-Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar í kjölfar MARKVISS verkefnis sem unnið var í Lundarskóla árið 2009 og styrkt af Sveitamennt.
Verkefnið gekk afar vel og í framhaldinu réðst SÍMEY í útfærslu fyrir alla aðra starfsmenn grunnskóla Akureyrarbæjar. Námskeiðið í heild sinni styrkti Sveitamennt – starfsmenntunarsjóður almennra starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni, Starfsmenntaráð og Mannauðssjóður Kjalar. |
meira... |
| |
23. júní 2010 10:24 |
Aukið framlag Sveitamenntar til endur-og símenntunar sveitarfélaga |
Tekur gildi frá og með 1. júlí 2010 |
Stjórn Sveitamenntar hefur ákveðið að auka framlag sjóðsins til námskeiða og annarra fræðsluverkefna hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra.
Frá og með 1. júlí 2010 mun Sveitamennt styrkja slík verkefni um 100% af kostnaði í stað 75% eins og verið hefur. Hér er um að ræða styrk sjóðsins til þeirrar fræðslu sem sveitarfélög og stofnanir þeirra bjóða starfsmönnum sínum upp á hverju sinni. |
| |
15. júní 2010 13:56 |
Breyting á reglum um einstaklingsstyrki |
Allt að kr. 132.000.- í styrk vegna starfsmenntunar |
Stjórn Sveitamenntar hefur ákveðið að taka upp eftirfarandi viðbót við reglur sjóðsins um einstaklingsstyrki;
Starfstengt réttindanám: Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn á fræðslustyrk síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk allt að kr. 132.000.- fyrir eitt samfellt námskeið/nám samkvæmt nánari reglum sjóðsins.
Reglan tekur gildi f.o.m. 1. júlí 2010 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem hefjast eftir þann tíma.
|
| |
31. maí 2010 15:20 |
Ársskýrsla Sveitamenntar 2009 |
Ársskýrslan á heimasíðu Sveitamenntar |
Árið 2009 hefur verið gert upp af stjórn Sveitamenntar og er staða sjóðsins sterk, hvort heldur sem litið er á fjárhagslega stöðu eða stöðu gagnvart fjölda verkefna sem sjóðurinn hefur komið að.
Styrkloforðum til sveitarfélaga og stofnanna þeirra fjölgaði aðeins á milli ára og er ánægjulegt að sjá hversu vel margar stofnanir hafa tekið við sér í tengslum við endur-og símenntun starfsmanna sinna.
Styrkjum til einstaklinga fjölgaði einnig á milli ára eða um 16% og voru greiddir út samtals 690 styrkir á árinu. Skipting styrkja á milli karla og kvenna hefur frá upphafi verið konum í vil en þó hafa karlarnir sótt verulega á núna. Konur tóku út 86% styrkja en karlar eru með 14%.
Sjá ársskýrslu hér. |
| |
19. maí 2010 14:21 |
Fræðslumiðstöð atvinnlífsins þjónar vinnumarkaðnum öllum |
Breyting á samþykktum Fræðslumiðstöðvar |
Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) þann 6. maí var samþykkt að BSRB, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytið verði aðilar að félaginu, auk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.
http://www.frae.is/frettir/nr/327/
|
meira... |
| |
4. maí 2010 13:05 |
Skólaslit Grunnmenntaskólans á Sauðárkróki |
12 útskriftarnemendur í Skagafirði |
Í síðasta mánuði voru 12 nemendur útskrifaðir úr Grunnmenntaskólanum frá Farskólanum, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra.
Grunnmenntaskólinn er 300 kest nám sem er niðurgreitt af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og styrkt af Sveitamennt. Helstu námsgreinar eru: sjálfsstyrking, íslenska, enska, stærðfræði, framkoma og ræðumennska, þjónusta og tölvugreinar.
Námið er metið til allt að 24 framhaldsskólaeininga og er ætlað þeim eru 20 ára og eldri. |
meira... |
| |
7. apríl 2010 12:56 |
Útskrift úr Fagnámskeiði á Snæfellsnesi |
Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu |
Í síðasta mánuði voru útskrifaðar 15 konur úr námskeiðinu
,,Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu" í Átthagastofu í Snæfellsbæ.
Konurnar sem sátu námskeiðið starfa m.a. á dvalarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði, dvalarheimlinu Jaðri í Ólafsvík, St. Fransiskuspítalanum í Stykkishólmi og ein kvennanna starfar sem dagmóðir og við liðveislu fatlaðra.
Skipst var á að halda námskeiðið í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og í Átthagastofu Snæfellsbæjar.
Helstu námsþættir á námskeiðinu voru sjálfstyrking, samskipti, þjónusta, skyndihjálp, siðfræði, líkamsbeiting og vinnuaðstaða, næring aldraðra, nudd og jóga.
|
meira... |
| |
24. mars 2010 15:17 |
Starfsmannafræðsla hjá Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar |
Markviss fræðsla í kjölfar þarfagreiningar |
Starfsmannafræðsla fyrir Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar fór af stað í kjölfar MARKVISS þarfagreiningar sem unnin var af Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar með stuðningi Sveitamenntar.
Markviss fræðsla hófst í upphafi árs 2009 og hefur tekið til allra starfsmanna sem eru um 40 manns. Á þessu ári hafa starfsmenn farið í gegnum námskeið og fræðslu er tengjast; samvinnu og samskiptum á vinnustað, hópefli, tölvunám, grunnnámskeið í ensku, líkamsbeitingu, skyndihjálp, fræðslu um einelti og fleira.
Náminu var dreift yfir tímabilið og hefur verið á vinnutíma starfsmanna. Mikil ánægja hefur verið hjá starfsmönnum með þessa fræðslu og hefur áhugi þeirra á sí- og endurmenntun stigmagnast á þessum tíma.
Jafnframt finna stjórnendur fyrir breytingum á viðhorfi starfsmanna til vinnustaðarins á jákvæðan hátt. Fyrirhugað er áframhald á þessari uppbyggingu.
|
| |
18. febrúar 2010 14:38 |
Menntasetrið á Þórshöfn öðrum til fyrirmyndar |
17. desember 2009 16:13 |
Útskrift úr Grunnmenntaskólanum í Vestmannaeyjum |
10. desember 2009 13:28 |
Fræðslusjóðir kynntir á Húsavík |
4. desember 2009 11:59 |
Verkalýðsfélag Snæfellinga opnar nýja heimasíðu |
26. nóvember 2009 09:36 |
Úrræði til árangurs |
20. nóvember 2009 10:45 |
Starfsmenntaverðlauninn 2009 |
19. október 2009 10:26 |
Grunnnám fyrir skólaliða hafið á Vestfjörðum |
9. október 2009 13:02 |
Fræðslusjóðirnir kynntir á ferðum um landið |
9. október 2009 12:54 |
Styrkir til atvinnurekenda með eigin fræðslu |
18. september 2009 12:10 |
Boðið upp á félagsliðabrú á Akureyri |
31. ágúst 2009 13:34 |
Styrkir til starfsmenntunar 2009 |
28. ágúst 2009 11:46 |
Máttur kvenna á Bifröst |
24. ágúst 2009 15:20 |
Finndu eldmóðinn! |
24. ágúst 2009 15:17 |
Menntamálaráðuneyti úthlutar 50 m.kr. til íslenskukennslu útlendinga haustið 2009 |
2. júní 2009 13:31 |
Kennslumyndband um þjónustu |
20. mars 2009 16:09 |
Kynning á Sveitamennt á starfsdegi stjórnenda Akureyrarbæjar |
eldri fréttir
|